Fara í efni  

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 – miðsvæði M2.

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi 11. desember 2018, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fyrirhuguð breyting nær til M2 Akratorg, Kirkjubraut, Stillholt, 7,9 ha að flatarmáli. Breytingin felst í að með auknu byggingarmagni skal auka við bílastæði í göturými, með samnýtingu og með bílageymslum neðanjarðar þar sem aðstæður leyfa. Skilmálar um fjölda bílastæða vegna aukinnar nýtingar skulu settir í deiliskipulag. Breyting á deiliskipulagi Stofnanareits er auglýst samhliða.

Breytingartillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar frá og með 29. mars til og með 12. maí 2019. Tillagan er einnig til kynningar á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til 26. maí 2019. Skila skal skriflegum athugasemdum í þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, eða á netfangið skipulag@akranes.is.

Hér að neðan má finna teikningu að breytingatillögunni að aðalskipulagi miðsvæðis M2.

Breytingatillaga

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00