Fara í efni  

Tillaga að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Akraneshafnar

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 Akraneshöfn
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 2. ágúst 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 skv. 31. gr. sbr. 1. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010,vegna Akraneshafnar. Breytingin felst m.a. í endurbyggingu og lengingu Aðalhafnargarðs. Hafnargarður Skarfatangahafnar er felldur út úr aðalskipulagi nú. Breyting á deiliskipulagi Akraneshafnar er auglýst samhliða. Hægt er að nálgast lýsinguna hér og auglýsingu.

Akraneshöfn Aðalhafnargarður tillaga að breytingu. Deiliskipulag Akraneshafnar
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 2. ágúst 2018 að auglýsa tillögu að breytingu deiliskipulagi Akraneshafnar skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akraneshafnar. Skipulagsvæðið nær til hluta aðalhafnargarðs og felst m.a. í lengingu brimvarnargarðs, endurnýjun á eldri bryggju og öldudeyfngu á milli aðalhafnargarðs og bátabryggju. Hægt að nálgast lýsinguna hér og auglýsingu.

Tillagan verður til kynningar hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar og í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, frá og með 18. október til og með 30. nóvember 2018. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 30. nóvember 2018 í þjónustuver Akraneskaupstaðar eða á netfangið skipulag@akranes.is


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00