Fara í efni  

Tilkynning frá Akraneskaupstað: Leikskólar á Akranesi opnir á morgun

Nemendur af leikskólanum Akraseli.
Nemendur af leikskólanum Akraseli.

Leikskólar á Akranesi verða opnir á morgun, föstudaginn 8. maí en áður hafði verið boðað að þeir yrðu lokaðir vegna verkfalls ræstingafólks sem starfar hjá fyrirtækinu Hreint ehf. og er í Verkalýðsfélagi Akraness sem er aðili að Starfsgreinasambandinu. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir að náðst hafi samkomulag við fyrirtækið um ræstingar snemma morguns á föstudeginum og því sé hægt að halda úti hefðbundinni starfsemi. Verkfallinu lýkur á miðnætti. 

Foreldrar geta því komið með börn sín í leikskólann 8. maí.

Vinsamlegast hjálpið okkur að láta fréttina berast. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00