Fara í efni  

Þrettándagleði, álfadans og flugeldasýning

Ljósmynd frá þrettándabrennu í janúar 2016.
Ljósmynd frá þrettándabrennu í janúar 2016.

Hin árlega þrettándabrenna verður haldin föstudaginn 6. janúar næstkomandi við „þyrlupallinn“ á Jaðarsbökkum. Blysför hefst við Þorpið að Þjóðbraut 13 kl. 18:00. Álfar, tröll og jólasveinar munu leiða gönguna að brennunni þar sem jólin verða kvödd. Að venju er það Björgunarfélag Akraness sem sér um brennuna og flugeldasýningu sem hefst um kl. 18.30.

Að því loknu býður Íþróttabandalag Akraness gestum í Íþróttamiðstöðina að Jaðarsbökkum þar sem tilkynnt verður um val á Íþróttamanni Akraness 2016 og boðið uppá veitingar.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00