Fara í efni  

Þremenningarnir Flosi, Gunnar Sturla og Einar hlutu menningarverðlaun Akraness 2021

Vökudagar 2021 voru formlega settir fimmtudaginn 28. október, við það tilefni voru menningarverðlaun Akraness 2021 afhent.

Þremenningarnir Flosi Einarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Einar Viðarsson hlutu menningarverðlaun Akraness fyrir framlag sitt til listgreina innan skólasamfélagsins. Þeir hafa frumsamið og leikstýrt fjölda söngleikja við fádæma undirtektir. 
Fyrst var Frelsi sýnt, en höfundar þess voru Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson. Einar Viðarsson bættist í hópinn þegar Hunangsflugur og villikettir komust á fjalirnar. Draumaleit var svo samstarfsverkefni við skóla á Ítalíu, í Svþjóð og Tyrklandi. Sá söngleikur var sýndur í hverju landi fyrir sig og loks var sameiginleg sýning haldin í Stokkhólmi í desember 2007. Enn fremur hafa litið dagsins ljós söngleikirnir Vítahringur (2009), Nornaveiðar (2012) Úlfur, úlfur (2015) og Smellur (2018).

Við óskum þeim Flosa, Gunnari og Einari innilega til hamingju með menningarverðlaun Akraness 2021.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00