Fara í efni  

Þjónustuver Akraneskaupstaðar lokar

Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verður þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18 lokað frá og með 24. mars og þar til samkomubann verður rýmkað eða aflétt.  

Aðalnúmer Akraneskaupstaðar 433-1000 verður að sjálfsögðu opið á hefðbundnum tíma eða frá kl. 09:00-15:00. Einnig er hægt að senda okkur skilaboð hér á samfélagsmiðlum https://www.facebook.com/Akraneskaupstadur/ eða í tölvupósti á netfangið akranes@akranes.is. Góð vöktun er á öllum tilheyrandi stöðum á opnunartíma.

Rafræn þjónusta Akraneskaupstaðar er með mjög góðu sniði og geta notendur sótt um þjónustu á rafrænum eyðublöðum hér í þjónustugátt kaupstaðarins, https://ibuagatt.akranes.is/.

Netföng starfsmanna bæjarskrifstofunnar má finna hér, https://www.akranes.is/stjornsysla/sima-og-netfangaskra og getur fólk sent tölvupósta beint á þann starfsmann sem það vill ná sambandi við.

Við vonum að þetta valdi ekki miklum óþægindum og trúum því að með góðri samvinnu gangi þetta upp.  


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00