Fara í efni  

Þetta þarf að hafa í huga fyrir tónleika Sinfó

Á morgun, föstudaginn 15. maí, munu fara fram sögulegir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í nýju íþróttahúsi Skagamanna á Jaðarsbökkum. Sveitin mun spila á tvennum tónleikum, annars vegar á barnatónleikum klukkan 13 og hins vegar á kvöldtónleikum kl. 19, en á þeim seinni munu yfir 200 kórsöngvarar og fimm einsöngvarar koma fram með hljómsveitinni.

Það er ekki á hverjum degi sem slíkur viðburður er í boði fyrir bæjarbúa, en aðgangur er ókeypis og reikna má með að færri komist að en vilji. Gestir eru því eindregið hvattir til að mæta tímanlega.

Á fyrri tónleikunum klukkan 13 eru elstu börn í leikskóla og þau yngstu í grunnskóla á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit boðsgestir. Þau börn eru nokkur hundruð talsins og ganga fyrir í sæti í stúkum og fyrir framan stúkuna. Húsið verður þó opið fyrir áhugasöm og jafnframt aðstandendur barna í þeim barnakórum sem koma fram með Sinfó. Þeir gestir eru hvattir til að finna sér pláss á svölunum fyrir ofan stúkurnar, en starfsfólk verður á svæðinu og vísar til vegar. Athugið þó að einungis er hægt að hleypa inn meðan húsrúm leyfir.

Kvöldtónleikarnir hefjast á slaginu kl. 19, en húsið opnar kl. 18.30. Gengið er inn um aðalinngang, á móti innganginum í Jaðarsbakkalaug. Hægt verður að taka á móti um 600 gestum og reikna má með að bílastæði fyllist fljótt. Þeir sem hafa tök á eru því hvattir til að ganga eða hjóla á staðinn, en benda má á bílastæði á eftirtöldum stöðum:

  • Framan við World Class.
  • Á malarstæði fyrir aftan World Class.
  • Við Grundaskóla.
  • Aftan við Akraneshöll.
  • Við Langasand.
  • Hjá Grundaseli (gamla Garðaseli).

Aðgengi er fyrir öll og lyfta er í húsinu. Á tónleikunum verður 20 mínútna hlé, en veitingasala verður bæði fyrir tónleika og í hléi. Hún er í umsjón 9., 10. og 11. flokks karla í Körfuboltafélagi ÍA.

Verið hjartanlega velkomin og góða skemmtun!


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu