Fara í efni  

Sundlaugarvörður (kona), framtíðarstarf

Akraneskaupstaður auglýsir eftir starfsmanni til starfa í íþróttamannvirkjum, m.a. við klefagæslu í kvennaklefa og sundlaugarvörslu. Um 100% starf er að ræða. Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna á Akranesi.

Áhersla er lögð á góða samskiptahæfni, sveigjanleika og þjónustulund.

Viðkomandi þarf að vera 19 ára eða eldri.

Um vaktavinnu er að ræða og unnið er bæði morgna, kvöld og helgar. Gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf í sumar/haust.

Hægt er að sækja um starfið og lesa allar nánari upplýsingar á Alfreð.is. 

Starfið á Alfreð.is


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu