Fara í efni  

Sumarvinna fyrir 17 ára unglinga (f.1998) hjá Vinnuskóla Akraness

Akraneskaupstaður og Vinnuskóli Akraness bjóða unglingum f.1998 með lögheimili á Akranesi vinnu við Vinnuskólann. Vinnan hefst í lok maí og unnið er 35 klst. á viku.

Stefnt er að vinnu í 4 - 8 vikur. Það ræðst af fjölda umsækjenda hversu langur sá tími verður. Haldinn verður fundur með umsækjendum áður en vinnan hefst og farið yfir stöðuna.

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða með því að skila inn umsókn í þjónustuver á 1. hæð að Stillholti 16-18. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí.  Aðeins þeir sem skila inn umsókn fyrir tiltekinn tíma verður veitt vinna.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Skúlason, rekstrarstjóri Vinnuskólans í síma 433-1056 eða 863-1113.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00