Fara í efni  

Sumarstörf við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum

Starf verkstjóra við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 20 ára og eldri

Akraneskaupstaður auglýsir eftir verkstjóra yfir starfshóp við almennt viðhald, umhirðu og framkvæmdir opinna svæða í umsjón Akraneskaupstaðar. Um er að ræða tímabundið starf í u.þ.b. sex mánuði frá apríl/maí til september/október. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára og eldri og með bílpróf.  

Helstu verkefni:

  • Umhirða og viðhald útivistarsvæða, leiksvæða og annarra opinna svæða
  • Umhirða gróðurs
  • Gróðursetning trjágróðurs og sumarblóma
  • Önnur tilfallandi verkefni

Kröfur um hæfni verkstjóra:

  • Reynsla af verkstjórn og mannaforráðum
  • Verklagni og útsjónarsemi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Færni í samskiptum, lipurð og jákvæðni
  • Þekking á gróðri æskileg

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um rafrænt í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl. Nánari upplýsingar gefur Sindri Birgisson umhverfisstjóri í tölvupósti á netfangið sindri.birgisson@akranes.is eða í síma 433-1000. 


Störf við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 18. ára og eldri

Akraneskaupstaður auglýsir eftir starfsfólki við almennt viðhald, umhirðu og framkvæmdir opinna svæða í umsjón Akraneskaupstaðar. Starfstími er 3 - 6 mánuðir yfir tímabilið maí til október. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára og eldri.

Helstu verkefni:

  • Umhirða og viðhald útivistarsvæða, leiksvæða og annarra opinna svæða
  • Umhirða gróðurs
  • Gróðursetning trjágróðurs og sumarblóma
  • Önnur tilfallandi verkefni 

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um rafrænt í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl. Nánari upplýsingar gefur Sindri Birgisson umhverfisstjóri í tölvupósti á netfangið sindri.birgisson@akranes.is eða í síma 433-1000. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00