Fara í efni  

Sumarstarf í Þorpinu

Gaman saman.
Gaman saman.

Frá 9. til 25. júní verður Frístundamiðstöðin Þorpið með sumarstarf (Gaman-saman) fyrir börn fædd 2002-2005. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega sumardagskrá með mikilli útiveru og skapandi starfi.

Starfið verður þematengt eftir vikum:  vísindavika, ævintýravika og fjallavika. Einnig verða smíðavöllur, listasmiðja, sundferðir, útileikir, fjöruferðir, hjólaferðir og margt fleira. Í hverri viku verður farin ein vettvangsferð (með strætó) út fyrir Akranes.

Það er hægt að skrá sig á allt tímabilið eða á vikur. Starfið er frá kl. 9.00 til 16.00

Skráning og fleiri upplýsingar má finna hér eða hjá umsjónarmanni Ruth Jörgensdóttir í tölvupósti eða í síma 433-1250/433-1252. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00