Fara í efni  

Sumarnámskeið Gaman-Saman 2018

Sumarnámskeið Gaman-Saman 2018

Í júnímánuði býður Frístundamiðstöðin Þorpið uppá sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 11-13 ára (2005-2007). Tímabilið er frá 11. - 29. júní.

Um er að ræða vikunámskeið sem standa frá kl. 9:00 - 16:00. Námskeiðin fara fram í Frístundamiðstöðinni Þorpinu sem stendur við Þjóðbraut 13. Alls verða þrjú námskeið í sumar og verður boðið upp á fjölbreytt og skemmtileg námskeið. 

Markmiðið er að bjóða upp á skemmtilega sumarafþreyingu auk þess að efla börnin sem einstaklinga og sem hópur. Leikir, hópefli, samvinnu-  og lýðræðisæfingar eru hluti af prógramminu. Mikil útivera og skapandi starf mun einkenna sumarið. Þátttakendur koma sjálfir með nesti, þ.e.a.s. hressingu fyrir hádegi og hádegismat. Boðið verður upp á eftirmiðdegishressingu.

Alls komast 20 börn á hvert námskeið en hægt verður að skrá á biðlista ef námskeið fyllist.

Umsjónarmaður sumarnámskeiða er Ruth Jörgensdóttir Rauterberg. Leiðbeinendur sumarnámskeiða eru Guðmundur Ásgeir Sveinsson og Elísabet Sveinbjörnsdóttir.

Verð og greiðslufyrirkomulag

Verðskrá:

  • 5 daga námskeið = 11.000 kr.
  • Systkinaafsláttur er 10%

Innifalið í námskeiðunum er öll dagskrá, samgöngur þegar við á og eftirmiðdagshressing. 

Greiðsla skal fara fram áður en námskeið hefst og eingöngu er hægt að greiða með kreditkorti í gegnum Nóra.

Skráning

Skráning og greiðsla á sumarnámskeið Gaman saman þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja næsta mánudag þar á eftir. 

Námskeið í boði

  • Vikan 11. - 15. júní (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 7.júní.
  • Vikan 18. - 22. júní (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 14. júní.
  • Vikan 25. - 29. júní (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 21. júní.

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Ruth Jörgensdóttir Rauterberg, umsjónarmanni sumarnámskeiða, í tölvupósti (ruth.jorgensdottir@akraneskaupstadur.is) eða í síma 433-1252.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00