Fara í efni  

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar óskar eftir starfsfólki í stoðþjónustu við fötluð börn. Um er að ræða störf í tímavinnu. Vinnutími er sveigjanlegur en oftast nær seinnipart dags og/eða um helgar.

Vinnan felst í að veita aðstoð við flestar athafnir daglegs lífs og veita stuðning og tækifæri til félagslegrar þátttöku. Starfsfólk þarf að geta unnið sjálfstætt en fær leiðsögn og stuðning frá foreldrum barnsins og ráðgjafaþroskaþjálfa velferðar- og mannréttindasviðs eftir þörfum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Viðkomandi þarf að vera stundvís og sveigjanlegur
  • Að virðing sé höfð að leiðarljósi í samskiptum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Akraneskaupstaðar
  • Nauðsynlegt er að viðkomandi tali og skilji íslensku
  • Reynsla af störfum með fötluðum æskileg, háskólamenntun kostur en ekki nauðsynleg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og leikni við að bregðast við óvæntum aðstæðum.

Starfið er tilvalið með skóla og/eða hlutastarfi. Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga annars vegar við Verkalýðsfélag Akraness eða Sameyki hinsvegar.

Nánari upplýsingar veitir Drífa Mjöll Sigurbergsdóttir, þroskaþjálfi á Velferðar- og mannréttindasviði, drifa@akranes.is eða í síma 433-1000

Sækja um


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu