Fara í efni  

Starf þroskaþjálfa/iðjuþjálfa í Grundaskóla

Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi óskast til starfa í 100% starf við Grundaskóla á Akranesi frá 15. ágúst 2016.  Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Grundaskóli er heildstæður grunnskóli með um 600 nemendur og 100 starfsmenn. Í Grundaskóla er metnaðarfullt skólastarf, gott starfsumhverfi og góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans.  Í Grundaskóla eru gerðar kröfur til nemenda og starfsfólks um dugnað, reglusemi, góða umgengni, góða ástundun og gagnkvæma virðingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna með börnum með sérþarfir í skólanum og gera þeim kleift að stunda nám í skóla án aðgreiningar
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs innan skólans
  • Að vinna í nánu samstarfi við foreldra, kennarar og annað starfsfólk skólans er viðkemur nemendum deildarinnar

Menntun og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af uppeldisstörfum æskileg 
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 
  • Hreint sakavottorð

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð.  Umsóknarfrestur er til og með 7. júní n.k. 

Nánari upplýsingar veita Hrönn Ríkharðsdóttir skólastjóri (hronn.rikhardsdottir@grundaskoli.is) og Sigurður Arnar aðstoðarskólastjóri (sigurdur.arnar.sigurdsson@grundaskoli.is) í tölvupósti eða í síma 4331400


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00