Fara í efni  

Sorphirða og rekstur móttökustöðva á Akranesi og í Borgarbyggð 2016-2021

Akraneskaupstaður og Borgarbyggð óska eftir tilboðum í sorphirðu fyrir heimili í þéttbýli og dreifbýli, umsjón grenndarstöðva, rekstur móttökustöðva, og flutning sorps. Útboð þetta er auglýst á EES svæðinu.

Helstu magntölur fyrir Akranes eru:

  • Sorpílát í þéttbýli 3.964 stk
  • Sorp frá heimilum 1.300 tonn/ári
  • Sorp frá móttökustöð 3.000 tonn/ári

Helstu magntölur fyrir Borgarbyggð eru:

  • Sorpílát í þéttbýli 1.587 stk
  • Sorpílát í dreifbýli 602 stk
  • Grenndarstöðvar 14 stk
  • Sorp frá heimilum 700 tonn/ári
  • Sorp frá grenndarstöðvum 1.000 tonn/ári
  • Sorp frá móttökustöð 900 tonn/ári

Verktími er 1. desember 2016 til 30. nóvember 2021. Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst með ósk þar um, þar sem fram kemur nafn, netfang og símanúmer, á netfangið akranes.utbod@mannvit.is.

Tilboð verða opnuð í ráðhúsi Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, Akranesi, þriðjudaginn 11. október 2016 kl. 11.00.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00