Snyrting gróðurs á lóðarmörkum
20.03.2026
Almennt - tilkynningar
Nú líður að vori og þá þarf að huga að gróðri. Garðeigendur á Akranesi eru vinsamlega beðnir að snyrta trjágróður sem kominn er út fyrir lóðarmörk. Þau tilmæli eru fyrst og fremst til að tryggja öruggar og greiðar leiðir um gangstéttar bæjarins fyrir bæði hjólreiðendur og göngufólk.
Í lögreglusamþykkt kemur meðal annars fram að:
- Gróður, svo sem tré, runnar og svo framvegis skulu ekki skaga út í eða út yfir gangstéttar, gangstíga eða götur, þó er heimilt að þau skagi út yfir, ef hæð þeirra er að minnsta kosti 2,8 metrar yfir gangstétt eða gangstíg, en 4,2 metrar yfir götu.
- Einnig skal húsráðendum skylt að snyrta allan gróður, þar með talið trjágróður, sem liggur að almannafæri þannig að umferð vegfarenda sé óhindruð.
Við bendum á að hægt er að losa garðaúrgang í skeifuna fyrir ofan móttökustöðina Gámu (sjá grænan ramma á mynd hér fyrir neðan). Annað má ekki fara á þennan stað heldur á það að fara í þar til gerða flokkun á móttökustöð Gámu.
Við viljum góðfúslega minna garðeigendur og fyrirtæki sem hafa gróður á sínum lóðum að hafa þetta í huga nú þegar vorið og vorverkin fara í hönd.

Fréttir
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015