Fara í efni  

Snyrting gróðurs á lóðamörkum

Garðeigendur eru vinsamlega beðnir um að snyrta trjágróður sem kominn er út fyrir lóðamörk til að tryggja öruggar og greiðar leiðir um göngustíga bæjarins. Þessi snyrting er mjög nauðsynleg vegna snjómoksturs í vetur.

Íbúar eru hvattir til þess að kynna sér lögreglusamþykkt Akraneskaupstaðar, þar sem meðal annars kemur fram í 11. gr. að gróður s.s. tré, runnar o.s.frv. skulu ekki skaga út í eða út yfir gangstéttar, gangstíga eða götur, þó er heimilt að þau skagi út yfir, ef hæð þeirra er a.m.k. 2,8 m yfir gangstétt eða gangstíg, en 4,0 m yfir götu. Einnig er íbúum bent á að skoða samþykktar reglur bæjarstjórnar Akraness um umgengni og þrifnað utanhúss á Akranesi en þar er eigendum eða umráðamönnum húsa og lóða gert skylt að halda eignum vel við, hreinum og snyrtilegum þ.á m. húsum, lóðum og girðingum.

Allar ábendingar eru vel þegnar frá íbúum og skulu berast á netfangið umhverfi@akranes.is eða í síma 433-1000.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00