Fara í efni  

Skráning í frístund fyrir komandi skólaár hafin

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í frístund fyrir skólaárið 2019-2020. Á Akranesi eru starfandi þrjú frístundaheimili fyrir börn í 1.- 4. bekk.

  • Brekkusel 1.- 2. bekkur í Brekkubæjarskóla
  • Grundasel 1.- 2. bekkur í Grundaskóla
  • Krakkadalur 3. - 4. bekkur úr báðum grunnskólunum

Frístundaheimilin bjóða upp á faglegt tómstundastarf þar sem börnin fá að njóta sín í frjálsum leik og skipulögðu starfi. Frístundastarfið er fjölbreytt og skemmtilegt og því ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Frístundaheimilin eru opin frá því að skóla lýkur á daginn til kl. 16:15.

Skráning í frístund fyrir skólaárið stendur til 5. júní nk. og  er hægt  að nálgast umsóknareyðublöð hér. Mikilvægt er að skrá barnið í frístund þó að endanlegur dvalartími liggi ekki fyrir. Upplýsingar um gjaldskrá frístundar er hér.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00