Fara í efni  

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar í heimsókn á Akranesi

Regína bæjarstjóri og Ragna fræðslustjóriStarfsfólk skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar heimsótti Akranes fimmtudaginn 7. maí s.l. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri tók á móti gestunum í bæjarþingsalnum og kynnti Akranes með sérstaka áherslu á skóla- og frístundastarf. Gestirnir heimsóttu síðan skólana í bænum, bæði leik- og grunnskóla og tónlistarskólann. Einnig var farið í Þorpið, í Akranesvita og endað á Safnasvæðinu í Görðum þar sem gestirnir fengu leiðsögn um sýninguna Óskasteinar.   

Með hópnum voru Svala Hreinsdóttir deildarstjóri skólaþróunar og sérfræðiþjónustu og Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri æskulýðs- og forvarnarmála fyrir hönd Akraneskaupstaðar. 

Akraneskaupstaður þakkar öllum þeim sem tóku á móti gestunum kærlega fyrir þeirra þátttöku og starfsmönnum skóla-og frístundasviðs fyrir heimsóknina. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00