Fara í efni  

Skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Akraneshafnar

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Akraneshafnar skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fyrirhuguð breyting tekur til H-102 sem er samkvæmt Aðalskipulag Akraness 2021-2033. Gert ráð fyrir landfyllingu. Landfyllingin er ætluð undir hafsækna starfsemi, fiskiðnað og aðra athafnastarfsemi. Skipulagssvæðið nær yfir hluta sjóvarnargarðs við aðalhafnagarð Akraneshafnar, og nær einnig yfir Heimaskagavör, Miðteigsvör og Steinsvör.

Hægt er að nálgast lýsinguna á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is og í þjónustuveri að Dalbraut 4. Ábendingar varðandi skipulagslýsingu eiga að vera skriflegar og berast fyrir 6. apríl 2024 í gegnum Skipulagsgátt https://skipulagsgatt.is/issues/2024/187, í þjónustuver Akranes-kaupstaðar Dalbraut 4 eða á netfangið skipulag@akranes.is

Skipulagslýsing


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00