Fara í efni  

Skipulagslýsing vegna aðal- og deiliskipulags Smiðjuvalla á Akranesi

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Akraness 2021-2033 og deiliskipulags Smiðjuvalla skv. 30. gr. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrirhuguð Aðalskipulagsbreyting tekur til þróunarsvæðis C. Skoðaðir verði möguleikar á þéttri blandaðri byggð íbúða og atvinnustarfsemi.

Unnið verður að deiliskipulagramma þar sem möguleikar á blandaðri landnotkun með íbúðabyggð verða kannaðir og skilgreindir svo unnt verður að vinna deiliskipulag einstakra reita. Samhliða verður unnið að deiliskipulagsbreytingu Smiðjuvalla 12-22 þar sem hugmyndir eru um að reisa blandaða byggð með íbúðum og atvinnustarfsemi.

Hægt er að nálgast lýsinguna HÉR og í þjónustuveri kaupstaðarins að Dalbraut 4. Ábendingar varðandi skipulagslýsingu eiga að vera skriflegar og berast fyrir 13. febrúar 2023 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Dalbraut 4 eða á netfangið skipulag@akranes.is


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00