Fara í efni  

Skipulagslýsing vegna aðal- og deiliskipulags Skógarhverfis áfanga 3A og 3C og Garðalundar

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 og deiliskipulags í Skógahverfi og Garðalundi sbr. 30 gr. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrirhuguð aðalskipulagsbreyting tekur til opinna svæða norðan og austan Skógahverfis, verslunar- og þjónustusvæðis við Garðalund, sem fellt verður út, og stækkunar Skógarhverfis til norðurs.

Deiliskipulag Garðalundar verður endurskoðað og skipulagssvæðið stækkað þannig að það nái yfir aðliggjandi skógræktar- og útivistarsvæði sem umlykja Skógahverfi. Í næstu skipulagsáföngum Skógahverfis, 3A og 3C, er stefnt að lágreistri, blandaðri íbúðarbyggð. Deiliskipulagsáætlanirnar verða sjálfstæðar en samþættar með áherslu á umhverfismál og góð tengsl nýrrar byggðar við útivistarsvæðin.

Með framlagningu og kynningu lýsingar er óskað eftir því að íbúar, umsagnaraðilar og aðrir hagsmunaaðilar leggi fram sjónarmið og ábendingar í upphafi verks, sem að gagni gætu komið við gerð skipulagsins.

Hægt er að nálgast lýsinguna á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is og í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18. Ábendingar og sjónarmið eiga að vera skrifleg og berast fyrir 22. maí 2020 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is.Tilgreina skal nafn, kennitölu og heimilisfang í innsendum gögnum.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00