Fara í efni  

Skemmtiferðaskipið Le Boreal kemur til Akraness fimmtudaginn 9. ágúst

Frá komu Le Boreal til Akraness árið 2017.
Frá komu Le Boreal til Akraness árið 2017.

Skemmtiferðaskipið Le Boreal hefur boðað komu sína til Akraness fimmtudaginn 9. ágúst næstkomandi samkvæmt fréttatilkynningu Faxaflóahafna. Skipið kemur kl. 08:00 um morguninn og fer kl. 19:00 um kvöldið.

Í tilkynningu Faxaflóahafna segir að Le Boreal, sem er í eigu Ponant, er 10.944 brúttótonn, 142 m. að lengd, 18 m. að breidd og með djúpristu upp á 4,8 m. Á skipinu eru 6 þilför fyrir gesti. Le Boreal getur tekið mest 264 farþega en auk áhafnar. Árið 2017 kom skemmtiferðaskip í fyrsta skipti til Akraness og var því um sögulegan viðburð að ræða bæði fyrir bæjarfélagið sem og Faxaflóahafnir sf. Það var einmitt skemmtiferðaskipið, Le Boreal, sem átti sína fyrstu skipakomu þá til bæjarfélagsins.  Markaðssetning á Akranesi hefur gengið vonum framar enda margt áhugavert að sjá bæði innan sem utan bæjarmarka. Í ár eru bókaðar alls 15 skipakomur til Akraness, þ.e.  14 skipakomur koma frá Panorama í eigu Variety Cruises og 1 skipakoma kemur frá Le Boreal í eigu Ponant.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00