Fara í efni  

Sigríður Steinunn ráðin verkefnastjóri atvinnumála

Sigríður Steinunn Jónsdóttir nýr verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað.
Sigríður Steinunn Jónsdóttir nýr verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað.

Sigríður Steinunn Jónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað og hefur störf þann 1. desember næstkomandi. Staðan var auglýst í byrjun september síðastliðinn og var umsóknarfrestur til og með 30. september, síðar framlengdur til 3. október. Alls bárust 27 umsóknir um starfið.

Sigríður Steinunn er rekstrarverkfræðingur að mennt frá Danmarks Tekniske Universitet. Sigríður vann á árunum 2014-2017 hjá Uno-x Smøreolie sem verkefnaráðgjafi. Þar stýrði hún m.a. lánum til viðskiptavina ásamt innleiðingu á rafrænu innheimtukerfi. Síðustu tvö ár hefur Sigríður starfað hjá Falck Global Assistance sem verkefnastjóri og voru verkefni hennar m.a. bestun alþjóðlegu virðiskeðjunnar og endurskoðun ferla með áherslu á kostnað og verðlagningu. Nú síðast hefur Sigríður starfað í tímabundnum verkefnum fyrir Kaupfélag Skagfirðinga um fýsileika fjárfestingakosti. Sigríður hefur í gegnum störf sín öðlast mikla þekkingu á verkefnastýringu ásamt framsetningu efnis og greiningu gagna. „Akranesbær er framsækið bæjarfélag sem hefur stutt vel við íbúa sína á sviðum stoðþjónustu, tómstunda og íþróttaiðkunar. Bærinn er aðlaðandi  fyrir fjölskyldufólk meðal annars vegna þess góða starfs sem hefur verið unnið á þeim sviðum. Ég er full tilhlökkunar til að taka þátt í að gera Akranesbæ enn betra bæjarfélag í fyrirhuguðu átaksverkefni á sviði atvinnumála“ segir Sigríður Steinunn Jónsdóttir verkefnastjóri atvinnumála.

Ráðning þessi er í samræmi við áherslur í málefnasamningi meirihlutans á Akranesi þar sem verkefnin framundan í tengslum við atvinnuuppbyggingu eru allmörg og viðamikil. Akranes stendur á tímamótum og eru mikil sóknartækifæri í atvinnuuppbyggingu hér í bæ. Hyggst Akraneskaupstaður sækja fram í að bjóða fjárfestum, fyrirtækjum og frumkvöðlum möguleika á uppbyggingu. Í nýjum atvinnureit í Flóahverfi er í boði glæsilegur byggingareitur fyrir fjölbreyttan iðnað og hátæknifyrirtæki.  Á sementsreit verður byggingarrými fyrir 14.800 fm af skrifstofu og verslunarrými ásamt einstökum hótelreit við höfnina.  Vinna við skipulag Akraneshafnar miðar að því að styðja við atvinnusköpun í sjávartengdum iðnaði svo eitthvað sé nefnt“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.

Akraneskaupstaður óskar Sigríði til hamingju með starfið og væntir þess að hennar starf megi vera gæfuríkt fyrir hana og Akraneskaupstað.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00