Fara í efni  

Sementsreitur - Gatnagerð og lagnir - 1. Áfangi

Akraneskaupstaður í samvinnu við Veitur ohf., Ljósleiðarann ehf og Mílu ehf., óskar eftir tilboði í gatnagerð, jarðvegsskipti og lagnir á Sementsreit á Akranesi.

Um er að ræða jarðvegsskipti undir götur og á byggingarreit, götulýsingu, lagningu allra veitukerfa og fjarskiptalagna í hluta reitsins.

Nokkrar stærðir í verkinu:

- Gröftur 65.000 m3

- Fylling gatna 35.000 m3

- Fráveitulagnir 1.100 m

- Kaldavatnslagnir 600 m

- Hitaveitulagnir 500 m

Verkið er með áfangaskilum 5. september 2024, 15. október 2024, 15. febrúar 2025 og verklok eru 15. apríl 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá föstudeginum 5. apríl 2024 í gegnum útboðsvef á slóðinni https://akranes.ajoursystem.net.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 25. apríl 2024. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00