Sea Spirit kemur í Akraneshöfn á morgun
Skemmtiferðaskipið Sea Spirit leggst að bryggju í Akraneshöfn á morgun, föstudaginn 25. september. Um er að ræða lítið og glæsilegt leiðangursskip sem siglir á vegum Poseidon Expeditions og sérhæfir sig í ferðum um heimskautasvæðin.
Sea Spirit er 90,6 metrar á lengd og 15,3 metrar á breidd og tekur allt að 114 farþega. Um borð er 72 manna áhöfn. Skipið er sérstaklega útbúið fyrir leiðangursferðir á norðurslóðum.
Koma Sea Spirit er fjórða koma skemmtiferðaskips til Akraness í sumar, en með komu Le Bellot á þjóðhátíðardaginn hófst móttaka skemmtiferðaskipa í Akraneshöfn eftir nokkurra ára hlé, en skipið var einnig fyrsta skemmtiferðaskipið sem lagðist að bryggju á Akranesi fyrir tæpum áratug.
Líkt og greint var frá í gær er framkvæmdum Faxaflóahafna við Aðalhafnargarð á Akranesi lokið. Með lengingu og endurbótum á hafnarbakkanum hefur aðstaða Akraneshafnar verið stórbætt og höfnin er nú betur í stakk búin til að þjónusta fiskiskip, skemmtiferðaskip og önnur stærri skip.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015