Fara í efni  

Samþykkt deiliskipulags Smiðjuvalla

Samþykkt deiliskipulags Smiðjuvalla vegna Smiðjuvalla 12-14-16-18-20-22

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 10. mars 2020, deiliskipulag Smiðjuvalla vegna lóða við Smiðjuvelli 12, 14, 16, 18, 20 og 22. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagssaga nr. 123/2010. Uppdráttur og greinargerð deiliskipulagsins hafa verið samþykkt í samræmi við ábendingar Skipulagsstofnunar. Lóðamörkum á horni Smiðjuvalla og Þjóðbrautar var breytt og stærð lóðar leiðrétt, vegna möguleika á að gerð hringtorgs. Lagfæringar eiga ekki við efnisatriði deiliskipulagsins eða hagsmuni annarra en Akraneskaupstaðar.

Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Birting auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda var 19. mars 2020.

 

Deiliskipulagsuppdráttur

Skýringaruppdráttur


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00