Fara í efni  

Samþykkt deiliskipulags fyrir Skógarhverfi 4. áfanga á Akranesi

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 25. febrúar 2020 deiliskipulag fyrir Skógarhverfi 4. áfanga. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið er samþykkt með þeirri breytingu að útfærsla gatnamóta Ketilsflatar og Þjóðbrautar verði óháð þessu deiliskipulagi. Lagfæringar eiga ekki við efnisatriði deiliskipulagsins eða hagsmuni annarra en Akraneskaupstaðar. Lagfæringar felast í eftirfarandi: Skipulagssvæðið er minnkað verður 2.12 ha í stað 2.25 ha. Lóð nr. 1 er minnkuð um 38 fermetra á vesturhorni. Nýtingarhlutfall er hækkað í 0.54 til að halda sama byggingamagni. Tölur í greinargerð eru uppfærðar til samræmis við breytt flatarmál skipulagssvæðis og lóðar.

Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00