Samþykkja heimgreiðslur til foreldra ungra barna
Bæjarráð Akraneskaupstaður hefur samþykkt að greiða svokallaðar heimgreiðslur til foreldra ungra barna, í þeim tilgangi að brúa bilið frá því fæðingarorlofi foreldra lýkur og þar til barn fær pláss hjá dagforeldri eða í leikskóla.
Um mánaðarlegar greiðslur er að ræða sem hefjast samkvæmt áætlun þegar innritunaraldri í leikskóla er náð. Upphæðin er 116 þúsund krónur á mánuði. Ekki er greitt vegna júlímánaðar. Samhliða heimgreiðslum er gert ráð fyrir hækkun á niðurgreiðslu til dagforeldra.
Mennta- og menningarsvið bæjarins vinnur nú að nánari útfærslu á fyrirkomulaginu, en því er ætlað að taka gildi þann 1. janúar 2027. Fyrsta heimgreiðsla myndi þá berast foreldrum þann 1. febrúar. Við nánari útfærslu verður horft til núverandi fyrirkomulags niðurgreiðslna vegna dagforeldra og samspils þessara úrræða.
Til að eiga rétt á heimgreiðslum þurfa barn og umsækjandi að eiga lögheimili á Akranesi, barnið þarf að hafa náð innritunaraldri í leikskóla og má hvorki vera í dvöl hjá dagforeldri né í leikskóla. Barnið þarf auk þess að vera á biðlista eftir dvöl hjá dagforeldri eða í leikskóla og ekki má vera um aðrar niðurgreiðslur frá Akraneskaupstað að ræða vegna dvalar barnsins. Heimgreiðslan er greidd þeim forsjáraðila sem barn á lögheimili hjá.
Nánara fyrirkomulag verður kynnt innan skamms, en umsóknir verða rafrænar í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar. Þær þurfa að berast fyrir 20. dag mánaðar til að réttur til greiðslu stofnist frá og með næstu mánaðamótum.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015