Fara í efni  

Samið við Íslandsgáma ehf. um framkvæmdir á Breið

Tekið við undirritun samningsins.
Tekið við undirritun samningsins.

Í síðustu viku var samningur við Íslandsgáma ehf. undirritaður um framkvæmdir á Breið. Skipulags- og umhverfisráð fól sviðsstjóra að semja við lægstbjóðanda verksins á fundi sínum þann 19. ágúst síðastliðinn en alls bárust 5 tilboð í verkið, sjá nánar hér 7. lið í fundargerð ráðsins

Í ár verður lögð áhersla á að ljúka við frágang með lagningu nýrra yfirborðsefna samkvæmt heildstæðri hönnun og skipulagi á Breiðinni. Það felur í sér að endurnýja stakkstæði og setja upp skjólveggi, borð og bekki á nýju áningasvæði. Jarðvegsskipta þarf að hluta svæðinu undir lagningu nýs yfirborðsefnis og hækka það lítillega til samræmis við umhverfið. Leggja þarf nýtt yfirborðsefni á stíga, dvalarsvæði og bílastæði; grafstein, steinalögn eða torf - eftir því sem við á. Það á einnig að bæta við hlöðnum veggjum og steypa í kringum vita ásamt fleiri verkum.

Breiðin á Akranesi fékk 35. m.kr. úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrr á árinu. Áætlaður heildarkostnaður við uppbyggingu á svæðinu í ár er um 55 m.kr. Í ákveðnum hluta verksins vinnur Unnsteinn Elíasson torg- og grjóthleðslumaður, m.a. endurgerð stakkstæðanna sem er nánast lokið og við aðrar grjóthleðslur á svæðinu. Þessu til viðbótar má geta þess að Vegagerðin ætlar að endurbæta grjótvörn á vestanverðri Breiðinni, frá stóra-vitanum að lóð þar sem olíutankar stóðu. Útboð þess efnis fer í birtingu um næstkomandi helgi. Akraneskaupstaður mun kosta 1/8  af þeirri framkvæmd.

Breiðin er einn fjölsóttasta ferðamannastaður á Akranesi. Uppbygging svæðisins hófst fyrir um 6 árum með greiningu, skipulagningu og hönnun. Búið er að efla svæðið sem útivistar- og áningarstað m.a. með því að útbúa aðkomutorg með þjónustuhúsum, steypa áningasvæði með bekkjum, ganga frá landmótun og gróðri, bæta aðgengismál til muna og endurvekja margar menninga- og sögulegar minjar. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00