Samið við fyrirtækið Spennt ehf. um byggingu fimleikahúss á Akranesi
Mánudaginn 13. ágúst síðastliðinn var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og fyrirtækisins Spennt ehf. um byggingu fimleikahúss á Akranesi. Framkvæmir hefjast nú í ágúst og er áætluð verklok í desember 2019. Alls bárust fimm tilboð í verkið sem var opnað þann 31. maí síðastliðinn og var Spennt ehf. lægstbjóðandi með samtals 607 m.kr.
Nýtt fimleikahús verður byggt við hlið íþróttahússins á Vesturgötu. Um er að ræða nýbyggingu á fimleikasal sem verður 1640 m² að stærð. Í salnum verður steypt áhorfendastúka en rými undir henni verður síðan nýtt undir sturtur fyrir núverandi búningsklefa sem fyrir eru í þróttahúsinu. Búningsklefar í eldri byggingu íþróttahússins verða endurnýjaðir sem og einnig anddyri og kennslurými þar sem frístund Brekkubæjarskóla hefur verið starfandi. Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu, stálvirki í þaki, þakeiningum, lögnum, loftræstingu, raflögnum, frágangi að innan og að utan og lóðargerð umhverfis húsið.
„Fimleikafélag Akraness telur á fjórða hundruð iðkenda og er ört stækkandi félag. Að vera komin á þetta stig að framkvæmdir eru að hefjast eru afar gleðileg tíðindi fyrir bæjarfélagið og erum við í skýjunum að þetta sé loksins að gerast eftir mikinn undirbúning og vinnu starfsfólks bæjarins og fimleikafélagsins." segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.
Fréttasafn
- 2025
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
 - 2024
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2023

 - 2022

 - 2021

 - 2020

 - 2019

 - 2018

 - 2017

 - 2016

 - 2015