Fara í efni  

Sævar Freyr Þráinsson ráðinn bæjarstjóri á Akranesi

Sævar Freyr Þráinsson.
Sævar Freyr Þráinsson.

Á lokuðum fundi bæjarstjórnar Akraness þann 28. febrúar síðastliðinn var samþykkt samhljóða að ganga til samninga við Sævar Frey Þráinsson um starf bæjarstjóra á Akranesi. Sævar tekur við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur sem nýlega var ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Sævar Freyr hefur verið forstjóri 365 miðla frá árinu 2014 en tilkynnt var í Kauphöllinni í morgun að Vodafone hefði gengið frá samkomulagi um kaup á rekstri ljósvaka- og fjarskipta­ rekstri 365 ásamt starfsemi visir.is.

Sævar er viðskiptafræðingur að mennt og hefur langa og farsæla reynslu af stjórnun. Hann starfaði sem forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Símanum um margra ára skeið þar sem hann bar meðal annars ábyrgð á þróun, sölu, markaðsmálum, vörustjórnun, viðskiptastýringu og gagnalausnum. Hann varð forstjóri Símans árið 2007 og gegndi því starfi þar til hann tók við forstjórastöðu hjá 365 miðlum. Sævar á sæti í framkvæmdastjórn viðskiptaráðs og hefur gengt stjórnarformennsku meðal annars hjá fyrirtækjunum Sensa og On-Waves og átt sæti í stjórnum fjölmargra fyrirtækja sem tengjast fjarskiptamálum og hugbúnaði.

Sævar Freyr hefur tekið með virkum hætti þátt í samfélags- og menningarmálum á Akranesi en hann er varaformaður knattspyrnufélags Íþróttabandalags Akraness, varaformaður Vesturlandsvaktarinnar sem eru hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og stjórnarmaður í góðgerðarfélaginu, Club 71. Þá hefur hann átt sæti í atvinnumálanefnd kaupstaðarins og í stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar.

Sævar Freyr er giftur Hafdísi Hannesdóttur geislafræðingi og eiga þau þrjú börn á aldrinum 13 til 21 árs. Sævar hefur störf sem bæjarstjóri á Akranesi í dag. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00