Fara í efni  

Sævar Freyr ráðinn áfram bæjarstjóri til fjögurra ára

Valgarður, Sævar Freyr og Elsa Lára.
Valgarður, Sævar Freyr og Elsa Lára.

Bæjarstjórn Akraness samþykkti einróma á fyrsta fundi sínum eftir kosningar áframhaldandi ráðningu við Sævar Frey Þráinsson um starf bæjarstjóra. Sævar hefur gengt embættinu frá því í mars 2017.

„Við hlökkum til samstarfsins við Sævar og erum ánægð með að hafa tryggt áframhaldandi starf hans sem bæjarstjóra á Akranesi“ er haft eftir oddvitum meirihlutans, þeim Elsu Láru Arnardóttur og Valgarði Lyngdal Jónssyni en þau gengu frá ráðningarsamningi við Sævar nú á dögunum til fjögurra ára.

Sævar er afar þakklátur fyrir það traust sem honum er sýnt að sinna þessu embætti. „Ég er stoltur að fá að vera bæjarstjóri í bæjarfélaginu sem ég er fæddur og alin upp í. Ég sé mikla möguleika til fyrir okkur sem bæjarfélag að eflast enn frekar td í eflingu atvinnulífs, þjónustu við bæjarbúa og uppbyggingu ýmissa innviða. Það er hlutverk mitt að viðhalda þeirri sókn sem við erum í sem bæjarfélag“. 

Nánari upplýsingar um Sævar Frey má finna hér.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00