Rúmlega 100 leikskólabörn sungu lög Dr. Gunna
Það var þétt setið í stúkunni í íþróttahúsinu á Vesturgötu þegar elstu börnin í öllum leikskólum Akraness og Skýjaborgar í Hvalfjarðarsveit héldu tónleika. Um var að ræða samstarfsverkefni Tónlistarskólans á Akranesi og leikskólanna fimm, en auk þeirra rúmlega 100 barna sem sungu spilaði 20 manna hljómsveit tónlistarskólans undir.
“Við erum búin að æfa síðan í janúar,” segir Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri Tónlistarskóla Akraness. “Fyrst ætluðum við að halda tónleikana í Tónbergi en sáum svo að það var allt of lítið svo við enduðum í íþróttahúsinu við Vesturgötu.”
Verkefnið kallast Söngvavor og á uppruna sinn hjá Tónskóla Sigursveins. Markmiðið er að halda tónleika þar sem elstu leikskólabörnin eiga sviðið og ungmenni tónlistarskóla leika undir. Árlega er íslenskt tónskáld valið og í ár var það Dr. Gunni. Því voru lög á borð við Prumpulagið og Glaðasti hundur í heimi á dagskrá.
Jónína sá sjálf um að stjórna söng barnanna en Heiðrún Hámundardóttir stjórnaði hljómsveitinni. Verkefnið var styrkt af Barnamenningarsjóði. Áhorfendabekkir voru þétt setnir af aðstandendum barnanna en að morgni var generalprufa þar sem næstelsti árgangur leikskólanna og yngstu börn í báðum grunnskólum fengu að njóta. Börnin sungu því tvisvar fyrir fullu húsi.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015