Fara í efni  

Reiðnámskeið sumar 2018

Reiðnámskeið sumar 2018

Hestamiðstöðin Borgartúni mun bjóða upp á reiðnámskeið í sumar.

Reiðnámskeiðin eru ætluð börnum og unglingum á aldrinum 9 ára og eldri, byrjenda og fyrir þá með reynslu.

Hvert námskeið stendur yfir frá mánudag til föstudags og eru kennd fyrir hádegi, frá kl: 10:00 - 12:00 eða eftir hádegi frá kl: 13:00 - 15:00.

Dagsetningar námskeiða: 

  • 11. - 15. júní
  • 18. - 22. júní
  • 25. - 29. júní fyrir þá sem eru með reynslu. Er fyrir þá sem hafa komið 2-3 sinnum eða oftar á námskeið eða jafnvel eiga hest.
  • Dagsetningar fyrir júlí og ágúst koma verða auglýstar síðar á facebooksíðu okkar.

Áhersla er lögð á að nemandi geti farið að sjá um sinn eigin hest sjálfur með lítilli hjálp frá kennara. Einnig verður farið í langa og skemmtilega reiðtúra.

Skráning og verð

Allar bókanir auk upplýsinga um verð má nálgast í síma 625-9025 eða í tölvupósti á netfangið hmborgartun@gmail.com.

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00