Fara í efni  

Rafrænt félagsstarf – nýjung í félagsstarfi aldraðra og öryrkja á Akranesi

Breyttir tímar kalla á nýja nálgun. Vegna COVID hefur ekki verið hægt að bjóða upp á hefðbundið félagstarf fyrir viðkvæma hópa.

Félagsstarf eldri borgara og öryrkja á Akranesi hefur því hafið rafrænt félagsstarf. Til að byrja með verður félagsstarfið á netinu á föstudögum og ef vel tekst til verður bætt í.

Við opnum rafræna gátt í gegnum fésbókarsíðu félagsstarfsins sem allir geta tengt sig við. Kemur fólk þar saman, hvert á sínum stað en þó allir saman. Það er spjallað, saumað, smíðað eða bara hvað það sem fólki dettur í hug að gera.

Samvera er öllum mikilvæg og því nauðsynlegt að hittast og njóta félagsskapar við hvort annað þó ekki sé hægt að koma saman í húsakynnum félagsstarfsins.

Hafi fólk ekki aðgang að fésbókinni má tengja sig í gegnum hlekkinn hér að neðan.

https://fb.me/e/3i5WbrSZZ


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00