Fara í efni  

Uppfært: Rafræn fræðslukvöld um svefn barna og ungmenna

Heilsueflandi samfélag Akranes býður upp á tvö rafræn fræðslukvöld um svefn barna og ungmenna, 2. nóvember og 5. nóvember og hefst fræðslan bæði kvöldin kl. 20:00. Skráning fer fram hér.

Vegna óviðráðlega orsaka verður fyrra fræðslukvöldinu frestað um viku og er ný tímasetning 5. nóvember en þá verður áhersla á svefn barna frá fæðingu til 6 ára aldurs. Elísa Guðnadóttir sálfræðingur Sálstofunnar (www.salstofan.is) leitast við að svara algengum spurningum foreldra um svefn barna sinna. Spurningum eins og; Af hverju er svefn mikilvægur? Hversu mikinn svefn þurfa börn 6 ára og yngri? Hvaða umhverfisþættir geta ýtt undir og viðhaldið svefnerfiðleikum? Hvaða hlutverk spilar daglúrinn og hvenær á að taka hann út? Hvað eru góðar svefnvenjur? Og hvað er til ráða ef barn fæst ekki í bólið, er lengi að sofna, þarf aðstoð við það eða getur ekki sofið í sínu rúmi? Spurningum sem allir foreldrar ungra barna ættu að geta nýtt sér svör við, sama hvort þeir eru á þessum tímapunkti að glíma við svefnerfiðleika eða vilja vita hvað þeir geta gert til að fyrirbyggja að eðlilegar svefntruflanir endi sem langvarandi svefnerfiðleikar.

Linkur á fræðslukvöldið 5. nóvember er hér fyrir neðan: 

https://us02web.zoom.us/j/89393806852?pwd=b1JJbEtLY1BLUW40clZ2YmppaGliQT09

Meeting ID: 893 9380 6852
Passcode: 5HLN1X

Á síðara fræðslukvöldinu 2. nóvember verður svefn grunnskólabarna ræddur og mun Elísa Guðnadóttir sálfræðingur Sálstofunnar (www.salstofan.is) fara nánar yfir þessa þætti og veita góð og gagnleg ráð um hvernig má fyrirbyggja og takast á við svefnerfiðleika grunnskólabarna. Svefn er ein af grunnþörfum mannsins og nauðsynlegur fyrir börn til að þau geti þroskast og dafnað. Svefnerfiðleikar eða of lítill svefn getur leitt til tíðari veikinda, einbeitingar- og minnisvanda, námserfiðleika, hreyfivirkni, hegðunarvanda og erfiðleika við að takast á við mótlæti í daglegu lífi. Þráðurinn er styttri og samskiptavandi líklegri. Ef undirliggjandi vandi er til staðar geta svefnerfiðleikar ýtt undir einkennin og valdið enn meiri hömlun í daglegu lífi en fyrir er. Foreldrar eru oft óvissir hversu mikinn svefn börnin þeirra þurfa, hvernig eigi að koma á góðum svefnvenjum og takast á við mótþróa á svefntíma.

Linkur á seinna fræðslukvöldið  er hér fyrir neðan:

https://us02web.zoom.us/j/82186235649?pwd=OEkxQmc1dmVHd1NRdEJ1WS9qR0ttQT09

Meeting ID: 821 8623 5649
Passcode: 4ey2jg

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00