Fara í efni  

Ræstingar á stofnunum Akraneskaupstaðar 2022 - 2025

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í ræstingu á 11 stofnunum, m.a. leikskólum, söfnum, skrifstofum og félagsmiðstöðum.

Verktaki skal ræsta stofnanirnar reglulega og ræsta einstök rými í samræmi við kröfur um fjölda þrifdaga í hverri viku. Um er að ræða hefðbundna ræstingu, m.a. á gólfflötum, borðum, láréttum flötum, gleri og snyrtingum, og losun ruslatunna. Þjónusta skal stofnanirnar virka daga yfir allt árið utan skilgreindra hátíðardaga og lokunardaga stofnunar. Gólffletir eru samtals um 6.400 m2.

Samningstími er 1. apríl 2022 til 31. mars 2025 með heimild til framlengingar, samtals 4 ár.

Verkið er auglýst á EES. Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá fimmtudeginum 25. nóvember 2021 í gegnum útboðsvef Mannvits: https://mannvit.ajoursystem.is/.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 13. janúar 2021.

Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum, en fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.

Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs

 

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00