Fara í efni  

Ráðstafanir í tónlistarskólanum vegna Covid-19 og samkomubanns

Í ljósi þeirra aðstæðna sem uppi eru þarf að grípa til aðgerða. Skólum og frístundastarfi hafa verið sett viðmið í starfsemi sem þarf að uppfylla og þeir stilla sér í framlínu sem hluti af almannavörnum landsins. Því verða þarf óhjákvæmilega að gera breytingar á starfi tónlistarskólans.

Kennara munu verða í sambandi við nemendur varðandi breytingarnar. Tímasetningar tímanna geta líka breyst og hugsanlega verður kennsla eitthvað skert því við erum að reyna að takmarka þann fjölda fólks sem er í húsinu á hverjum tímapunkti.  Við skipuleggjum kennslu þannig að aldrei eru fleiri en sjö kennarar að kenna í einu í húsinu.

Allir hljómsveitartímar falla niður og hóptímar/samsöngur getur fallið niður eða verið skipulagðir með öðru sniði þannig að færri nemendur séu í einu og/eða í stærra rými. 

Allir nemendur eiga að þvo sér um hendur fyrir tíma. 

Tónlistarkennslan verður ekki í grunnskólunum nema að einhverju leyti í Heiðarskóla og færist öll kennsla í húsnæði Tónlistarskólans. 

Aðalinngangi skólans verður þó lokað og allir eru beðnir um að ganga inn um hurð á bakhliðinni sem verður merkt. Það er gert til að óviðkomandi séu ekki að koma inn í húsnæði skólans. Við þennan inngang eiga nemendur að fara úr skónum en yfirhafnir eiga að fylgja þeim inn í skólastofurnar.

Kennarar og nemendur reyna að halda 2m fjarlægð og stofur eru þrifnar á snertiflötum eftir hvern tíma og síðan er farið vel yfir allt 1x á dag.

Viðkvæmum nemendum og öðrum sem eiga erfitt með að mæta verður boðið upp á fjarkennslu og hver kennari útfærir leiðir að því í samvinnu við nemendur og forráðamenn. Við reynum að koma til móts við alla nemendur eftir bestu getu.

Sýningar á Dýrunum í Hálsaskógi sem áttu að vera á vegum leikfélags Fjölbrautaskólans á Akranesi falla niður, sömuleiðs fyrirhugað landsmót lúðrasveita sem og allir tónfundir sem fyrirhugaðir voru í skólanum.  

Þetta eru óvissutímar og við sendum út tilkynningar ef eitthvað breytist.

Nú er upplagt að njóta þess að spila og syngja heima!

Ef eitthvað er óljóst þá endilega hafið samband á toska@toska.is eða í síma 433-1900.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00