Fara í efni  

Ráðstafanir í Brekkubæjarskóla vegna Covid-19 og samkomubanns

Svohljóðandi tilkynning var send til foreldrasamfélags Brekkubæjarskóla um ráðstafanir vegna samkomubanns sem tók gildi á miðnætti 15. mars sl.

Við stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum

Gripið hefur verið til aðgerða sem eiga sér engin fordæmi á lýðveldistímum sem meðal annars snúa að skólastarfi í landinu. Öllum er ljóst mikilvægi þess að farið verði að öllu með gát, bregðast við og fylgja fyrirmælum stjórnvalda.

Öryggi og heilsa nemenda og starfsfólks er fyrir öllu

Við þessar aðstæður er eðlilega ekki hægt að halda uppi hefðbundnu skólastarfi. Það verður með gjörbreyttu sniði og takmarkað. Á meðan á neyðarstigi stendur er verkefni okkar allra að halda börnum og ungmennum virkum, bæði andlega og líkamlega.
Starfsfólk Brekkubæjarskóla mun gera sitt besta til þess að skóla- og heimanám nemenda verði eins markvisst og árangursríkt og aðstæður leyfa. Árgangateymi skólans eru að undirbúa næstu daga og úrlausnirnar verða ólíkar eftir aldri nemenda og þroska. Við grípum nú til neyðaáætlunar skólans sem er sambland skólasóknar og heimanáms.

Upplýsingar um fyrirkomulag

Umsjónarkennarar munu senda ykkur í dag upplýsingar um hvernig skipulagið þeirra verður bæði dagana sem nemendur mæta og þá daga sem nemendur eru heima.

Afar mikilvægt er að kennarar og foreldrar séu góðu sambandi. Við viljum einnig hvetja ykkur til að senda fyrirspurnir og hugmyndir til baka um það sem betur má fara. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að skólafólk og foreldrar vinni vel saman og skapi sterka liðsheild. Þetta óvissuástand mun sem betur fer ganga yfir og þrátt fyrir allt þá er bjart framundan. Skipulag okkar í Brekkubæjarskóla miðast við það að allir eiga að halda áfram í náminu þó hefðbundin skólasókn allra árganga riðlist um tíma.

Mötuneyti og brauðsala lokuð

Mötuneyti skólans er lokað sem og brauðsala á unglingastigi. Foreldrar þurfa því að útbúa skólanesti fyrir börnin sín. Uppgjör gjalda vegna matarskráningar og frístundar verða endurreiknuð í ljósi þess sem nú hefur verið ákveðið.

Skólabyggingunni skipt upp í lokaðar einingar

Skólabyggingunni okkar er skipt upp í einingar til að reyna að koma í veg fyrir krosstengsl á milli árganga. Einnig er öllu starfsfólki skipt upp í tíu sjálfstæð teymi sem sinna hvert einum árgangi og hverjum árgangi verður skipt upp í hópa sem halda sér. Þannig reynum við að tryggja að ef veiran kemst að einum hóp, sem þarf þá hugsanlega að hætta skólasókn, halda hinir níu hóparnir áfram.

Nemendur og starfsmenn mega því ekki fara inn á svæði sem aðrir hópar eru. Hver árgangur gengur áfram inn um sinn inngang og það er einungis einn árgangur í hverju anddyri á hverjum degi. Því er mikilvægt að nemendur gangi einungis inn um sinn inngang.

Umgengni um skólann

Til að nemendur sé ekki á ferðinni um skólann nema þar sem þeir eiga að vera verður skólinn læstur til kl. 7:55 á morgnana. Þá opnar starfmaður úr teyminu þeirra innganginn og tekur á móti þeim. Eins verður nemendum fylgt út þegar skóladegi lýkur.

Meðan á þessu stendur fær enginn að koma inn í Brekkubæjarskóla nema þeir nemendur og starfsmenn sem eiga að vera í skólanum hverju sinni. Foreldrar geta því ekki fylgt börnum sínum nema að útidyrahurðinni og ef þið þurfið að tala við starfsmenn þurfið þið að hringja eða senda tölvupóst.

Starfstími skóla og frístundar

  • Hver skóladagur er frá kl. 8 – 12.
  • Frístund opnar kl. 13 og heldur úti þjónustu til kl. 16:15. Nemendur koma með nesti með sér í frístund.
  • Á neðangreindri töflu má sjá hvenær einstakir árgangar eiga að mæta í skóla og frístund. Fylgt er rúllukerfi þannig að hver árgangur er í skólanum tvo daga af hverjum sex.
  • Reynt er að mæta þeim yngstu með því að tryggja nemendum í 1. bekk þjónustu í frístund þrjá daga á móti skóla og nemendum í 2. bekk tvo daga.
  • Engin kennsla fer fram í íþróttahúsi, sundlaug eða list- og verkgreinastofum.
  • Ef færi gefst til að auka skólasókn eða breytingar verða vegna nýrra upplýsinga mun ykkur berast tilkynning um það tafarlaust.

Skipulag skólastarfsins

Við sem stöndum að skólasamfélaginu í Brekkubæjarskóla tökum nú höndum saman í því verkefni sem blasir við. Við ætlum að leysa þetta verkefni í góðri samvinnu heimilis og skóla.

Við ítrekum það sem kom fram í bréfinu frá Almannavörnum að nemendur sem eru með hita eða einkenni sem svipar til einkenna flensu mæti ekki í skólann á meðan neyðarstig almannavarna er í gildi.

Ef eitthvað er óljóst eða frekari aðstoðar er þörf þá bendum við á að alltaf má leita upplýsinga í gegnum netföng skólans eða senda póst á netfangið skrifstofa@brak.is

Skrifstofa skólans verður einungis opin frá 7:45-13:00. Símsvörun á skrifstofu skólans er einnig opin í síma 4331300.

Við stjórnendur ætlum að skiptast á að vera í skólanum. Arnbjörg og Dagný verða á sömu dögum og Elsa Lára og Vilborg á sömu dögum. En við verðum í fjarvinnu þá daga sem við verðum ekki hér og því hægt að ná í okkur í síma og tölvupósti.

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00