Fara í efni  

Quarashi þakkaði fyrir sig á Akranesi

“Við vorum bara að spjalla eftir æfingu á þriðjudeginum og þá kom þessi hugmynd upp,” segir Ísólfur Haraldsson rekstraraðili Bíóhallarinnar um þá ákvörðun hljómsveitarinnar Quarashi að vera með opna æfingu í Bíóhöllinni á föstudag. Um 250 gestir mættu til að hlusta á sveitina æfa fyrir komandi stórtónleika í Laugardalshöll um helgina auk þess sem RÚV var með beina útsendingu  frá æfingunni í kvöldfréttum.

“Þá langaði bara að þakka fyrir sig,” segir Ísólfur jafnframt en Quarashi menn hafa verið við æfingar á Akranesi undanfarinn mánuð fyrir 30 ára afmælistónleika sína á laugardag. “Þetta reyndist líka vera mjög góð ákvörðun og var eiginlega alveg magnað. Frábært að fá tækifæri til að keyra prógrammið fyrir framan áhorfendur og þarna var fólk á öllum aldri," segir Ísólfur en óhætt er að segja að mikil stemning hafi verið á æfingunni og einn tónleikagesta af yngri kynslóðinni fékk að láta ljós sitt skína á sviðinu eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Guðni Hannesson tók. "Þetta eykur bara á tilhlökkunina og róar taugarnar. Ég er á því að bandið hafi aldrei verið betra.”

Eins og Skagamönnum er sjálfsagt í fersku minni kom Quarashi saman á Lopapeysunni fyrir rúmu ári eftir langt hlé. “Þeir eru svo ánægðir með að hafa tekið þá ákvörðun, en hugmyndin með því var að sjá hvort væri tilefni til að halda stórtónleika í tilefni af 30 ára afmæli sveitarinnar í ár,” segir Ísólfur. Skemmst er frá því að segja að tónleikarnir á Lopapeysunni heppnuðust það vel að ákvörðun var tekin um afmælistónleika í Laugardalshöll í beinu framhaldi.

Nær uppselt er á tónleikana í Laugardalshöll á laugardag, en áhugasamir geta þó enn nálgast miða á tix.is.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu