Fara í efni  

Dagur umhverfisins og árleg vorhreinsun

Plokkum og flokkum

Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness vilja hvetja alla bæjarbúa, unga sem aldna sem og fyrirtæki, stofnanir og hópa til að taka þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins af tilefni degi umhverfisins þann 25. apríl næstkomandi. Aðildafélög Íþróttabandalags Akraness ætla að tína upp rusl á völdum svæðum og vilja með því sýna umhverfisábyrgð og hvetja aðra til þess að taka þátt í nýjum heilsusamlegum og umhverfisvænum sið. Hægt er að tína upp rusl eða „plokka“ á förnum vegi á meðan gengið er eða skokkað. Þannig má sameina áhuga á útiveru og umhverfismeðvitund og ánægjan af því að fara út og hreyfa sig verður margfalt meiri. Nú er akkúrat tíminn þar sem rusl er áberandi, snjórinn farinn og gróðurinn ekki búinn að taka við sér, það gerir ruslatínslu auðveldari og kjörið tækifæri til að hreyfa sig og fegra umhverfið í leiðinni. Gámar verða staðsettir á ákveðnum stöðum í bænum og geta íbúar og hópar skilað þar endurgjaldslaust því sem saman safnast. Ætlast er til að sorp sé flokkað og verða gámar merktir með viðeigandi flokkunarmerkjum.


Vorhreinsun 

Vorhreinsun íbúa, fyrirtækja og stofnana fer fram dagana 25. apríl til 6. maí. Bæjarbúar, ungir sem aldnir eru hvattir til að fagna vori og taka þátt í hreinsun og fegrun lóða og umhverfis í þágu allra bæjarbúa. Gámar verða staðsettir á ákveðnum stöðum í bænum á tímabilinu og geta íbúar og fyrirtæki skilað þar endurgjaldslaust því sem til fellur við vorhreinsunina. Ætlast er til að sorp sé flokkað og verða gámar merktir með viðeigandi flokkunarmerkjum. Aldraðir og öryrkjar geta óskað eftir að fá aðstoð við að sækja staka þunga eða stóra hluti.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00