Fara í efni  

Óskað er eftir tillögum um bæjarlistamann Akraness árið 2021

Sævar Freyr Þráinsson og Tinna Rós Þorsteinsdóttir Mynd: Myndsmiðjan
Sævar Freyr Þráinsson og Tinna Rós Þorsteinsdóttir Mynd: Myndsmiðjan

Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann Akraness árið 2021. Hér má sjá hverjir hafa verið kjörnir bæjarlistamenn Akraness í gegnum árin.

Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tillögur sem berast og verða niðurstöður kynntar á Þjóðhátíðardaginn, þann 17. júní. Fólk er hvatt til að kynna sér vel þær reglur sem í gildi eru um bæjarlistamann, en reglurnar má sjá hér. Frestur til að skila inn tillögu er til og með 23. maí næstkomandi.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00