Fara í efni  

Lokið - Óskað eftir tilboðum í verkið: Fimleikahús á Akranesi - Búnaður

Mynd tekin frá byggingarsvæði nýs fimleikahúss.
Mynd tekin frá byggingarsvæði nýs fimleikahúss.

Skipulags og umhverfissvið Akraneskaupstaðar óskar eftir tilboðum í verkið: Fimleikahús á Akranesi - Búnaður

Nýtt fimleikahús er í byggingu á Akranesi og verður tekið í notkun í vorið 2020. Verkefnið felst í því að útvega og setja upp fimleikabúnað tilbúinn til notkunar í nýju fimleikahúsi sem er í byggingu við Háholt, Brekkubæjarskóla á Akranesi.

Um er að ræða að skaffa og setja upp fyrir fimleika ýmsan búnað í gryfjur sem er lyftanlegur að hluta, ásamt trambolínbraut (fasttrack) í gryfju. Einnig skal útvega gólfdúk og rafdrifin skilrúm/tjöld ásamt fullnaðarfrágangi.

Verktaki sem fær verkefnið mun þurfa að gera ráð fyrir og taka tillit til m.a. nágranna, umferð íbúa sem og annarra verktaka í og við framkvæmdasvæðið og sérstaklega mikilvægt er að verktaki taki tilliti til og lágmarki rask á skóla- og íþróttastarfi. 

Útboðsform
Um opið útboð er að ræða og er það því almennt útboð eins og lýst er í grein 1.2.2 í ÍST30. Útboð þetta er einnig auglýst á hinu evrópska efnahagssvæði (EES). Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2020.

Útboðsgögn verða afhent áhugasömum frá og með þriðjudeginum 8.október 2019. Senda skal óskir um útboðsgögn á netfangið omar@vso.is. Tilboðum skal skilað í afgreiðslu bæjarskrifstofu Akranes, Stillholti 16-18, 1. hæð, eigi síðar en þriðjudaginn 12. nóvember 2019 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00