Fara í efni  

Opnun þreksals á Jaðarsbökkum

Þreksalurinn að Jaðarsbökkum mun opna að nýju laugardaginn 15. ágúst n.k. samkvæmt frétt á vef Íþróttabandalags Akraness, www.ia.is, en þar kemur eftirfarandi fram:

"Heilbrigðisráðherra gaf út nýja auglýsingu í dag 12. ágúst sem tekur gildi þann 14. n.k. Ákveðið hefur verið í framhaldi af þeirri auglýsingu að opna þreksal á Jaðarsbökkum aftur laugardaginn 15. ágúst samkvæmt almennt auglýstum opnunartíma. Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að auka sóttvarnir, samt sem áður taka allir ábyrgð á sjálfum sér og sótthreinsa eftir sig og halda tveggja metra reglu. Með samvinnu allra og virðingu á umgengisreglum tekst okkur að komast í gegnum þetta og vonum að ekki þurfi að grípa til lokanna aftur.

Iðkendur eru beðnir að fara áfram eftir tilmælum sóttvarnarlæknis og starfsfólks íþróttamannvirkja."


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00