Fara í efni  

Opnað fyrir umsóknir í styrktarsjóð fyrir uppsetningu hleðslustöðva við fjöleignarhús 2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í styrktarsjóð fyrir uppsetningu hleðslustöðva við fjöleignarhús 2021.

Um er að ræða samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar og Orkuveitu Reykjavíkur um að veita styrki til húsfélaga fjöleignarhúsa á Akranesi til kaupa, uppsetningar og tengingar á hleðslustöðvum fyrir rafbíla á sameiginlegum bílastæðum á lóð viðkomandi fjöleignarhúss.

Styrkhæfir þættir samkvæmt reglunum eru eftirfarandi:

  1. Kostnað vegna ráðgjafar sérfræðinga um hönnun hleðslustöðva fyrir rafbíla við viðkomandi fjöleignarhús.
  2. Allan efniskostnað við að koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla á lóð viðkomandi fjöleignarhúss þ.m.t. hleðslustöð, raflagnaefni og festingar.
  3. Vinnu jarðvinnuverktaka og iðnaðarmanna við að koma fyrir rafögnum, setja upp hleðslustöðvar, tengingar raflagna og yfirborðsfrágang.
  4. Kostnaður við leyfa veitingar og heimtaugagjald.
  5. Styrkur er einungis veittur til miðlægrar hleðslustöðvar þar sem allir íbúar viðkomandi fjöleignarhús geta notað. Húsfélagi viðkomandi föleignahús er heimilt að opna hleðslustöðina fyrir öðrum viðskiptavinum en íbúum viðkomandi fjöleignahús.

Umsóknarfrestur til og með 31. janúar 2021. Með umsókn skal skila lýsingu á framkvæmdinni, fjölda og staðsetningu hleðslustöðva sem áætlað er að setja upp, kostnaðaráætlun, tilboðum verktaka og hversu háan styrk sótt er um. Jafnframt skal fylgja lýsing á því hvernig gjaldfærslu fyrir notkun hleðslustöðvanna er háttað. Umsókn skal fylgja samþykki húsfélags fyrir framkvæmdinni og breyttri notkun bílastæða sem ætluð eru til hleðslu rafbíla.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00