Fara í efni  

Opinn upplýsingafundur vegna sólmyrkva

Þann 12. ágúst næstkomandi mun almyrkvi á sólu ganga yfir vesturhluta Íslands og sjást frá öllum sveitarfélögum á Vesturlandi, þar með talið Akranesi. Gera má ráð fyrir mikilli aðsókn gesta á svæðið til að upplifa þennan sjaldséða atburð og því mikilvægt að allir sem málið varðar taki þátt í undirbúningi og samráði.

Til að kynna stöðu undirbúnings og ræða samstarf vegna almyrkvans verður haldinn opinn upplýsingafundur á Teams á morgun, fimmtudaginn 12. mars kl. 14-15. Fundurinn er sérstaklega ætlaður ferðaþjónustuaðilum og landeigendum, en öllum sem hafa áhuga á málinu er velkomið að taka þátt. Skráningarhlekk er að finna hér fyrir neðan, en þeir sem skrá sig fá svo sendan hlekk á fundinn.

Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa heldur utan um samráðsvettvang Vesturlands vegna almyrkva, þar sem hagaðilar vinna saman að því að skapa yfirsýn yfir aðstöðu og mögulegar aðgerðir á svæðinu. Markmiðið er að stuðla að góðum undirbúningi fyrir atburðinn, auk þess að miðla upplýsingum og kynna þá aðstöðu og upplifunarmöguleika á Vesturlandi sem gestir sem koma til að sjá almyrkvann geta nýtt sér.

Mikilvægt er að ná til ferðaþjónustuaðila og landeigenda sem kunna að hafa aðstöðu eða áhuga á að taka á móti gestum í tengslum við almyrkvann, til dæmis með bílastæðum, tjaldsvæðum, aðstöðu fyrir hópa eða annarri þjónustu. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku samráði eru hvattir til að skrá sig hér. Markaðsstofa Vesturlands mun í framhaldi hafa samband við þá sem skrá sig til frekara samráðs, en skráningin er ekki bindandi.

Skráning á upplýsingafund


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu