Fara í efni  

Opinn fundur í verkefninu Gott að eldast

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða til opins fundar í verkefninu Gott að eldast.

Á fundinum verða kynntar niðurstöður nýrrar könnunar um virkni, þátttöku og líðan eldra fólks á Akranesi. Niðurstöðurnar varpa ljósi á stöðu og upplifun hópsins og skapa mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi þróun þjónustu.

Einnig verður farið yfir stöðu samþættrar þjónustu við eldra fólk og rætt hvernig ólíkir þjónustuþættir vinna saman að því að styðja við sjálfstætt og innihaldsríkt líf. Sérstök áhersla verður lögð á hlutverk iðjuþjálfa og framlag þeirra til aukinnar virkni, vellíðanar og lífsgæða.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og er kjörið tækifæri til að fræðast, ræða málin og taka þátt í samtali um það hvernig við getum best stutt við
gott líf á efri árum.

Fundurinn fer fram í Miðsalnum að Dalbraut 4, Akranesi miðvikudaginn 8. apríl klukkan 14:00.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu