Fara í efni  

Opinn dagur í Tónlistarskólanum á laugardag

Í tilefni af Vökudögum hefur Tónlistarskólinn á Akranesi helgað líðandi viku samspili nemenda í ýmsum myndum. Nemendur hafa myndað stærri og smærri hljómsveitir og samspilshópa og verður árangurinn af starfi vikunnar fluttur fyrir gesti Tónlistarskólans á laugardaginn kemur, 4. nóvember. Það verður stöðugur tónlistarflutningur víða um skólann allt frá klukkan 12 á hádegi og fram til kl. 17. Meðal annars leikur 50 manna hljómsveit í Tónbergi klukkan 13.00, 15.00 og 16.30.

Tilgangurinn með þessari viku er að gefa nemendum tækifæri til að reyna fleira en þeir fá alla jafna í náminu og opna þannig á milli ólíkra þátta starfsins í Tónlistarskólanum.

Allir eru velkomnir til að njóta tónlistarflutnings af ýmsu tagi - kaffisala á staðnum!


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00