Fara í efni  

Opið hús - kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi Æðarodda

Opið hús / kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi verður fimmtudaginn 14. mars nk. frá kl. 12:30 til 17:00 á 1. hæð að Stillholti 16-18.

Breyting á deiliskipulagi Æðarodda

Breytingin felst í að afmörkuð verður ný lóð með byggingarreit fyrir reiðskemmu, norðan aðkomuleiðar í hverfinu. Vegi syðst á skipulagssvæðinu er breytt til samræmis. 

Eftir kynningu (Opið hús) á ofangreindum skipulagsbreytingum (skipulagsgögnum) verða þau lögð fyrir skipulags- og umhverfisráð og bæjarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagsbreytingar mun frestur til að gera athugasemdir við þær vera að minnsta kosti 6 vikur.

 

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00